Islandia.dk er viðskiptaþjónusta og ráðgjafafyrirtæki með 17 ára reynslu í Danmörku. Hjá Islandia.dk starfa íslenskir ráðgjafar með viðskiptafræðilega menntun, og sem hafa búið 21 og 25 ár í Danmörku. Okkar sérsvið er útrásar- og markaðsathuganir, viðskiptaáætlanir, opnun og gangsetning markaða svo og landastjórnun markaða. Einnig bjóðum við uppá aðstoð við að finna verslunar og atvinnuhúsnæði fyrir fyrirtæki sem hyggja á útrás til Danmerkur. Kaup fasteigna í Danmörku, bæði fyrir fyrirtæki og einstaklinga er eitt af sérsviðum okkar.
Islandia.dk hefur reynda ráðgjafa sem vinna sjálfstætt, fólk sem hefur sjálft staðið í atvinnurekstri og veit hvað þarf til. Njóttu góðs af reynslu okkar og samböndum í Danmörku og sparaðu þér tíma og fyrirhöfn.
Kjarnahæfileikar Islandia.dk
Rannsaka markað
Opna markað
Starfrækja eða þjónusta markað
Kaupa eða útvega húsnæði
Kostir
Af hverju notfæra sér þjónustu lítils íslensks fyrirtækis í Danmörku? Af hverju ekki strax að leita til stóru ráðgjafafyrirtækjanna og þeirra útibúa hér? Við erum lítið fyrirtæki með 17 ára reynslu á danska markaðinum.
Við erum ekki með stóra kostnaðarsama yfirbyggingu og getum þess vegna stillt verðum okkar í hóf. Við erum með reynda ráðgjafa sem vinna sjálfstætt. Fólk sem sjálft hefur rekið og stofnað eigin fyrirtæki og veit hvað til þarf.
Njóttu góðs af reynslu okkar hjá Islandia.dk, NETVERK okkar er ómetanlegt og í raun ómissandi meðan þú ert nýr á markaðinum. Mundu að við gætum haft samböndin sem þú ert að leita að!
Hlutverk Islandia.dk er að vera þitt netverk í Danmörku, þar til þú ert kominn með þitt eigið netverk og getur staðið á eigin fótum. Hafðu samband